• Skip to content
  • Jump to main navigation and login

Nav view search

Navigation

  • Forsíða
  • Ljósmyndun
  • Framleiðsla
  • Útgáfa
  • Um Kjöl

Search

ÍSLAND á umbrotatímum

ÍSLAND á umbrotatímum

 

Í þessari bók lýsir höfundurinn Björn Erlingsson í máli og myndum þeim miklu umbrotum sem orðið hafa í íslensku samfélagi, frá hinni horfnu sveit eyðijarða til himinhárra glerhýsa nútímans. Fjallað er um góðærið og hið mikla bankahrun í samfélagi þar sem fjölskyldur eru bornar út af heimilum sínum meðan skuldir fjárglæframanna eru afskrifaðar. Í bókinni eru fjölmargar ljósmyndir víða af landinu og úr búsáhaldabyltingunni sem ekki hafa áður verið birtar.

 

„Mitt í óbyggðunum stóðu yfir mestu framkvæmdir Íslandssögunnar, þar sem tugir ferkílómetrar lands voru að hverfa undir vatn. En það var jú í lagi, meðan byggingum og innfluttum bifreiðum fjölgaði og svimandi háar gróðatölur bárust frá ársuppgjörum bankanna, sem virtust vart vita hvað ætti að gera við allan afraksturinn.“

Ljósmyndirnar í bókinni voru teknar á hinum ýmsu stöðum á landinu, má þar nefna: Reykjavík, Kópavog, Þingvelli, Gullfoss, Landmannalaugar, Fimmvörðuháls, Eyjafjallajökul, Flateyjardal, Kerlingarfjöll, Hrafntinnusker, Hagavatn og Hálslón.

 

 

 

Ljósmyndun

Undanfarin ár hefur starfsemi Kjalar færst í auknu mæli inn á svið ljósmyndunar. Á næstu vikum mun fyrirtækið gefa út aðra ljósmyndabók Björns Erlingssonar, ÍSLAND á umbrotatímum. Efni úr bókinni mun birtast á heimasíðunni samhliða útgáfu bókarinnar.

Áður hefur Kjölur gefið út bókina
ÍSLAND allra veðra von, einnig eftir Björn Erlingsson.

ÍSLAND allra veðra von

Útgáfa

Kjölur hefur gefið út nokkrar bækur, þar af tvær bækur eftir Þorgeir Þorgeirsson, Eitthvað að huxa um og Dagsformið.

Eitthvað að huxa um

Framleiðsla

Kjölur framleiðir og selur gestabækur fyrir ýmis tilefni.

Gestabækur

Skilvirkni.is